Tilkynningar
Nýjar myndir
Skóladagatöl
Heimsókn frá Norðuráli
Heimsókn úr atvinnulífinu
Samvinna á sýningunni Reykjanes 2009
Þjónusta
Fyrir hverja
- Einstaklinga sem ekki eru á vinnumarkaði vegna veikinda, slysa eða félagslegra erfiðleika en eru að vinna að endurkomu út á vinnumarkaðinn.
- Einstaklinga sem eru á örorku/ endurhæfingarlífeyri hjá Tryggingastofnun og lífeyrissjóðum, bótum hjá svæðisvinnumiðlun eða sveitarfélagi.
- Einstaklinga sem vilja á markvissan hátt vinna að því að breyta stöðu sinni og stefna út á vinnumarkaðinn á ný eða í frekara nám.
Tilvísanir/ umsókn
Þátttakendum Samvinnu er vísað í starfsendurhæfingu af fagaðilum, til dæmis félagsráðgjöfum hjá fjölskyldu- og félagsþjónustu sveitarfélaganna á Suðurnesjum, læknum, sálfræðingum og félagsráðgjöfum á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, ráðgjöfum Vinnumálastofnunar, starfsfólki sjúkrasjóða stéttarfélaga og starfsfólki lífeyrissjóðsins Festa. Þegar tilvísun hefur borist er einstaklingurinn boðaður í viðtal hjá ráðgjöfum Samvinnu. Ef einstaklingur hefur áhuga á að komast í endurhæfingu hjá Samvinnu þá fyllir hann út umsókn og hefst þá endurhæfingarferlið.
Endurhæfingarferlið
Í grófum dráttum lítur endurhæfingarferlið svona út:

Gert er ráð fyrir því að endurhæfingin taki allt að 18 mánuðum en það er mjög einstaklingsbundið hvenær fólk er reiðubúið að snúa aftur út á vinnumarkaðinn. Endurhæfingaráætlun þátttakenda er því endurskoðuð með reglulegu millibili.
Tilvísanir skal senda á skrifstofu Samvinnu að Krossmóa 4, 260 Reykjanesbæ.
Tilvísun
Hvað er boðið upp á
Endurhæfingaráætlanirnar eru einstaklingsmiðaðar en flestir fara í gegnum eftirfarandi dagskrá:
|
1. önn |
2. önn |
|
3. önn |
|
|
|
Fag |
Stundir |
Fag |
Stundir |
Fag |
Stundir |
|
Íslenska |
24 |
Íslenska |
60 |
Íslenska |
60 |
|
Enska |
24 |
Enska |
60 |
Enska |
60 |
|
Fjármálanámskeið |
10 |
Tölvu- og upplýsingatækni |
60 |
Stærðfræði |
60 |
|
Verkefnatímar 3x |
6 |
Starfsþjálfun 4 x |
14 |
Starfsþjálfun |
42 |
|
Skapandi starf 4x |
12 |
Skapandi starf 4x |
12 |
Starfsfræðsla |
30 |
|
Yoga 6x |
6 |
Lífsleikni/sjálfstyrking |
30 |
Skapandi starf 4x |
12 |
|
Sjálfsstyrking |
24 |
Hreyfing |
30 |
Hópfundur |
4 |
|
Hreyfing, tæki |
24 |
Hópfundur |
4 |
Hreyfing |
15 |
|
Næringarfræði 3x |
6 |
Fjöldi tíma á önn |
270 |
Fjöldi tíma á önn |
283 |
|
Hópfundur |
4 |
||||
|
Fjöldi tíma á önn |
140 |
||||
Auk þessa innihalda endurhæfingaráætlanirnar sérsniðna meðferð fyrir hvern og einn, dæmi um það geta verið, viðtöl hjá sálfræðingi, geðlækni og/eða félagsráðgjafa. Sjúkraþjálfun, talþjálfun og lesblinduleiðrétting. Hópfundir eru tvisvar í mánuði og allir þátttakendur fara í einstaklingsviðtöl hjá ráðgjafa Samvinnu minnst einu sinni í mánuði enn oftar ef þörf er á.
Tenglar
- Atvinna / réttindi
- Starfsendurhæfingarsjóður
- Tryggingastofnun ríkisins
- Vinnumálastofnun
- Heilsa og heilsutengd fræðsla
- ADHD samtökin
- Lýðheilsustöð
- Vefjagigt
- Samstarfsaðilar
- Björgin
- Virkjun
- Keilir
- Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum
- Stofnfélagar
- Sveitarfélög
- Grindavíkurbær
- Reykjanesbær
- Sandgerðisbær
- Sveitarfélagið Garður
- Sveitarfélagið Vogar
- Menntastofnanir
- Fjölbrautarskóli Suðurnesja
- Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum

