Tilkynningar
Nýjar myndir
Skóladagatöl
Heimsókn frá Norðuráli
Heimsókn úr atvinnulífinu
Samvinna á sýningunni Reykjanes 2009
Um Samvinnu
Hlutverk og markmið
Saga
Stjórn
Samstarfsaðilar
Starfsfólk
Staðsetning
Hlutverk Samvinnu er að veita starfsendurhæfingu einstaklingum sem vegna veikinda, slysa og félagslegra erfiðleika eru að vinna að endurkomu út á vinnumarkaðinn. Þátttakendur eru einstaklingar sem eru á örorku/ endurhæfingarlífeyri hjá Tryggingastofnun og lífeyrissjóðum, fólk sem er á bótum hjá svæðisvinnumiðlun eða sveitarfélagi. Þjónusta Samvinnu nýtist þeim einstaklingum sem vilja á markvissan hátt vinna að því að breyta stöðu sinni og stefna út á vinnumarkaðinn á ný.
Markmið
• Að endurhæfa þátttakendur til vinnu.
• Að stuðla að auknum lífsgæðum þátttakenda.
• Að stuðla að auknum lífsgæðum fjölskyldu þátttakandans.
• Að þátttakandi fari í atvinnu að endurhæfingu lokinni og/eða í áframhaldandi nám.
Samvinna býður upp á heildstæða úrlausn á vanda hvers þátttakanda eins og kostur er á í samvinnu við félags- og heilbrigðisyfirvöld og mennta- og fræðslustofnanir og aðra hagsmunaaðila á svæðinu. Þátttakandi er sjálfur virkur í sinni endurhæfingu frá upphafi þar sem hann kemur með virkum hætti að gerð sinnar endurhæfingaráætlunar. Endurhæfingin er einstaklingsbundinn og tekur mið af þörfum einstaklingsins. Um er að ræða námstengda endurhæfingu og heldur Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum utan um þann þátt og fer kennslan fram í húsnæði þeirra. Auk þess er boðið upp á fjármálaráðgjöf, sálfræðistuðning, hópefli, sjálfsstyrkingu og líkamsþjálfun og ýmsa aðra sérsniðna meðferð eða ráðgjöf. Þátttakendur fara auk þessa í starfsþjálfun í fyrirtækum á Suðurnesjum.
Samvinna, starfsendurhæfing á Suðurnesjum er sjálfseignarstofnun sem stofnuð var þann 15. maí 2008. Stofnfundurinn fór fram í húsnæði Miðstöðvar símenntunnar á Suðurnesjum og var hann vel sóttur og kynntur í fjölmiðlum. Mikill áhugi og eining ríkti á fundinum fyrir fyrirhugaðri starfsemi enda brýn þörf að samþætta starfsemi stofnanna og félaga hér á Suðurnesjum til þjónustu og stuðnings við þá sem ekki hafa átt afturkvæmt á vinnumarkað. Að verkefninu standa félags- og tryggingamálaráðuneytið, heilbrigðisráðuneytið og menntamálaráðuneytið annars vegar og Samvinna hins vegar. Stofnaðilar eru öll sveitarfélögin á Suðurnesjum, Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis, Verslunarmannafélaga Suðurnesja, Félag iðn- og tæknigreina, Starfsmannafélag Suðurnesja, Heilbrigðistofnun Suðurnesja, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Vinnumálastofnun á Suðurnesjum og Festa lífeyrissjóður. Á fundinum samþykktu stofnaðilar stofnskrá, stofnfé og tilnefndu fimm stjórnarmenn og fimm til vara. Fyrirmyndin að Samvinnu er fengin frá Starfsendurhæfingu Norðurlands sem stofnuð var árið 2003 og hefur gefið góða raun og opnað mörgum skjólstæðingum nýja sýn og fjölmarga möguleika.
Starfsemi Samvinnu hófst haustið 2008 og voru þá teknir inn tuttugu þátttakendur í upphafi árs 2009 voru teknir inn þrjátíu til viðbótar. Eftir það hafa tveir hópar á ári hafið endurhæfingu einn í september og annar í febrúar. Alls geta fimmtíu þátttakendur verið í endurhæfingu á sama tíma. Gert er ráð fyrir því að endurhæfing hvers þátttakanda standi að hámarki í eitt og hálft ár.
Fyrsta árið fór starfsemin frá á mörgum stöðum, skrifstofan var til húsa að Tjarnargötu 7 hjá Félag iðn- og tæknigreina, námið fór fram í húsnæði Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum að Skólavegi 1, Sjúkraþjálfunarstöðin Átak skipulagði heilsueflingu á Nesvöllum og skapandi starf var kennt í Svarta pakkhúsinu. Í júní 2009 flutti Samvinna skrifstofu sína að Krossmóa 4 og er nú í sama húsnæði og Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.
Stjórn
Stjórn Samvinnu er kosin á ársfundi til tveggja ára og er skipuð fimm fulltrúum stofnfélaga og fimm til vara , Guðjónína Sæmundsdóttir er stjórnarformaður og Hjördís Árnadóttir varaformaður.
Guðbrandur Einarsson
Verslunarmannafélag Suðurnesja
Varamaður: Kristján Gunnarsson
Verkalýðs- og sjómannafélagið.
Hjördís Árnadóttir
Reykjanesbæ
Varamaður: Nökkvi Már Jónsson
Grindavíkurbæ
Sigfús Eysteinsson
Festa lífeyrissjóður
Varamaður: Gylfi Jónsson
Festa lífeyrissjóður
Guðjónína Sæmundsdóttir
Miðstöð símenntunar
Varamaður: Ólafur Jón Arnbjörnsson
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Sigríður Snæbjörnsdóttir
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, tók sæti Ketils Jósepssonar vorið 2011
Varamaður: Verður kjörin á ársfundi Samvinnu í ágúst 2011
Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum er helsti samstarfsaðili samvinnu en þar fer allt bóklegt nám fram. http://mss.is/new_/
Miðstöðin er með aðsetur að Krossmóa 4, 260 Reykjanesbæ.
Sjúkraþjálfunarstöðin Átak skipuleggur heilsueflingu fyrir þátttakendur og leggur til húsnæði sitt á Nesvöllum, Njarðarvöllum 4, 260 Reykjanesbæ.
http://www.heilsuatak.is/index.php
Einn sálfræðingur frá Miðstöð Sálfræðinga Sjöfn Ágústsdóttir hefur aðallega unnið með þátttakendur hjá Samvinnu en auk þess eru fjölmargir aðrir sálfræðingar sem koma að sérsniðinni meðferð.
http://www.midstodsalfraedinga.is/
Meðal annarra samstarfsaðila má nefna fjölskyldu- og félagsþjónustu sveitarfélaga á Suðurnesjum, Virkjun, mannauðs á Reykjanesi, Björgin Geðræktarmiðstöð, læknar og annað starfsfólk heilbrigðisstofnun Suðurnesja ásamt fjölda kennara og sérfræðinga sem koma að endurhæfingunni.
Gerður Pétursdóttir, verkefnastjóri
sími: 412 5960, 8416566, netfang: gerdur(hja)starfs.is
Menntun:
2008 MS í Mannauðstjórnun, Háskóli Íslands
2007 B.Ed. í leikskólafræði, Kennaraháskóli Íslands
1999 PD í uppeldis og kennslustörfum, Danmarks Pædagoghöjskole, DK
1990 Leikskólakennari, Fósturskóli Íslands
Starfsreynsla:
Gerður starfaði sem leikskólastjóri í leikskólanum Heiðarseli frá 1990 – 1996. Á árunum 1996 – 2000 bjó hún í Danmörku og starfaði í frístundaklúbbi fyrir börn á aldrinum 9 – 14 ára. Árið 2000 varð hún leikskólastjóri á Hjallatúni í Reykjanesbæ þar starfaði hún til ársins 2006 þegar að hún tók að sér að stýra þróunarverkefninu Virðing og jákvæð samskipti í leikskólanum Gefnarborg Garði. Gerður hóf störf hjá Samvinnu árið 2008 hún er verkefnastjóri en sinnir jafnframt hlutverki ráðgjafa.
sími: 412 5962, 867 1515, netfang: birna(hja)starfs.is
Ragnhildur Helga Guðbrandsdóttir sími: 412 5962, 867 1515, netfang: rhelga(hja)starfs.is
Menntun: 1994 þroskaþjálfi, þroskaþjálfaskóli Íslands 2009 M.Ed. í þroskaþjálfafræði, Háskóli Íslands
Starfsreynsla: Helga Starfaði sem yfirþroskaþjálfi á leikskólanum Ösp í Reykjavík á árunum 1994-1999 og á skammtímaheimili fyrir börn og unglinga með atferlistruflaða hegðun. Á árunum 1999-2009 starfaði hún bæði í búsetu og í dagþjónustu sem yfirþroskaþjálfi og forstöðuþroskaþjálfi hjá Svæðisskrifstofu Reykjaness. Árið 2009 réði Helga sig til starfa hjá Starfsendurhæfingu Hafnarfjarðar og starfaði þar sem ráðgjafi til ársins 2011. Einnig starfaði hún sem ráðgjafarþroskaþjálfi hjá félagsþjónustu Sandgerðisbæja, Sv. Garðs og Sv. Voga árið 2011. Helga hóf störf hjá Samvinnu 2011 og sinnir hlutverki ráðgjafa.
Samvinna – starfsendurhæfing
Krossmói 4
260 Reykjanesbæ

Tenglar
- Atvinna / réttindi
- Starfsendurhæfingarsjóður
- Tryggingastofnun ríkisins
- Vinnumálastofnun
- Heilsa og heilsutengd fræðsla
- ADHD samtökin
- Lýðheilsustöð
- Vefjagigt
- Samstarfsaðilar
- Björgin
- Virkjun
- Keilir
- Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum
- Stofnfélagar
- Sveitarfélög
- Grindavíkurbær
- Reykjanesbær
- Sandgerðisbær
- Sveitarfélagið Garður
- Sveitarfélagið Vogar
- Menntastofnanir
- Fjölbrautarskóli Suðurnesja
- Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum

