Forsíða Um Samvinnu Þjónusta Upplýsingar og fræðsla Stundatöflur og skóladagatal Myndir

    Tilkynningar

    Nýjar myndir

    08/11/2011 09:54:36

    Skóladagatöl

    03/12/2010 15:19:07

    Heimsókn frá Norðuráli

    09/23/2009 10:07:18

    Heimsókn úr atvinnulífinu

    09/10/2009 09:46:28

    Samvinna á sýningunni Reykjanes 2009

    08/20/2009 14:42:31

    Fréttir frá Samvinnu

    Útskrift

    01/11/2010 15:21:52

    Föstudaginn 8. janúar útskrifuðust fyrstu þátttakendur hjá Samvinnu, starfsendurhæfingu á Suðurnesjum. Samvinna deilir þriðju hæðinni á Krossmóa 4 með MSS og mikil samvinna er milli þessara tveggja stofnanna. Tilgangur Samvinnu er að veita atvinnutengda endurhæfingu fyrir einstaklinga sem fallið hafa út af vinnumarkaði vegna sjúkdóma, slysa eða annarra áfalla. Markmiðið er að styðja þá til að stunda atvinnu á almennum vinnumarkaði eða til að takast á við nám. Miðstöð Símenntunar skipuleggur og heldur utan um námslega hluta endurhæfingarinnar í samstarfi við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Boðið er upp á nám á framhaldsskólastigi ýmist í formi einingarnáms eða styttri námskeiða. Þátttakendurnir sem nú eru að útskrifast eru ellefu talsins á aldrinum 24 – 64 ára af báðum kynjum. Þau hafa stundað einingabært framhaldsnám í; íslensku, ensku, stærðfræði, upplýsinga- og tölvutækni ásamt því að fá fræðslu í fjármálum, lífsleikni, sjálfsstyrkingu, nýsköpun og hreyfingu. Endurhæfingin tók átján mánuði eða þrjár annir og eina sumarönn. Á síðustu önninni fóru einstaklingarnir í starfskynningar í fyrirtækjum hér á Suðurnesjum einn dag í viku. Starfskynningarnar tókust mjög vel og segja umsagnir fyrirtækjanna meira en mörg orð.

    Áhugasöm og jákvæð í starfi, framkoma, viðmót og tjáning er til fyrirmyndar svo og samvinna við bæði þjónustunotendur og starfsfólk. R. Helga Guðbrandsdóttir, Hæfingarstöðin í Keflavík.
     
    Áhugasöm og mjög vinnusöm. Góður starfsmaður með jákvæðni að leiðarljósi. Skemmtilegt að fá að kynnast henni og fá að njóta krafta hennar hér í Kaffitári. Stella Marta Jónsdóttir, Kaffitár
    Til baka