Forsíða Um Samvinnu Þjónusta Upplýsingar og fræðsla Stundatöflur og skóladagatal Myndir

    Tilkynningar

    Nýjar myndir

    08/11/2011 09:54:36

    Skóladagatöl

    03/12/2010 15:19:07

    Heimsókn frá Norðuráli

    09/23/2009 10:07:18

    Heimsókn úr atvinnulífinu

    09/10/2009 09:46:28

    Samvinna á sýningunni Reykjanes 2009

    08/20/2009 14:42:31

    Fréttir frá Samvinnu

    Fjöldi gesta kynnti sér það nýjasta

    09/10/2009 09:42:18

    Mikill fjöldi gesta lagði leið sína á sýninguna Reykjanes 2009 í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ á Ljósanótt til að kynna sér það nýjasta í uppbyggingu atvinnlífs, þjónustu og handverkshönnun. Góður rómur var gerður að frammistöðu þeirra rúmlega 50 sýnenda sem tóku þátt í sýningunni en þeir höfðu lagt mikla vinnu í að gera sín sýningarsvæði sem áhugaverðust fyrir gesti, jafnt unga sem aldna.

    Sýningin var haldin undir yfirskriftinni „þekking, orka, tækifæri“ og var markmið hennar að varpa ljósi á atvinnulíf, þjónustu sveitarfélaga og mannlíf á Reykjanesi. Opnun sýningarinnar fór fram föstudaginn 4. september, þar sem Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar flutti ávarp og Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls opnaði sýninguna formlega.

    Sýningin var áfram opin á laugardag og sunnudag og var þannig hluti af fjölbreyttri Ljósanæturhátíð Reykjanesbæjar. Á sunnudeginum voru veitt verðlaun sérstakrar dómnefndar fyrir athyglisverðustu sýningarsvæði Reykjaness 2009. Verðlaunin hlutu Norðurál í þriðja sæti, Efla í öðru sæti og Kadeco / Keilir í því fyrsta. Útvarpsstöðin Bylgjan var með beina útsendingu frá sýningunni föstudag og laugardag og tónlistaratriði voru flutt í boði Ljósanætur.

    Reykjanes 2009 var haldin af Reykjanesbæ í samvinnu við AP almannatengsl sem sáu um skipulagningu, kynningu og framkvæmd sýningarinnar. Öflugir samstarfsaðilar úr atvinnulífinu á Reykjanesi komu einnig að sýningunni; Bláa lónið, Geysir Green Energy, Háskólavellir, HS Orka, KADECO – Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Keilir, Norðurál og Sparisjóðurinn í Keflavík.

    Til baka